Bleikisteinsháls að gefa

Þrátt fyrir að vera nánast í hávestan í morgun þá var einhvern smá sunnanþefur af vindinum við Hamranesið svo Sverrir ákvað að skella sér á svæðið með svifflugu og kanna hvort það væri eitthvað hang í kortunum. Stuttu eftir að hann mætti á svæðið þá kom Guðjón í sömu erindagjörðum og þrátt fyrir að vindurinn væri frekar vestanstæður þá var smá sunnanátt í honum og eins og oft vill vera þá var hann betri upp á brekkubrún.

Þegar upp var komið kom í ljós að vindurinn var í kringum 10 m/s og blés ca. 60° á brekkubrúnina þannig að það var ekki annað í stöðunni en að ballesta vel og henda vélinni upp í vindinn. Þokkalegasta hang en frekar rysjótt og ekki skemmtilegustu aðstæðurnar en sæmilega hlýtt og sól. Ágætis viðring svona í byrjun tímabils og fyrsta hangflug ársins hér heima hjá mér.