Meira fjör á Bleikisteinsháls

Guðjón tók daginn snemma og skellti sér í morgunflug í 8-11 m/s beint á brekkuna. Eftir 18 mínútna flug var niðurstaðan skítkaldir puttar svo heim var haldið eftir það. Eftir vinnu fóru Elli og Sverrir á Bleikisteinsháls og var flogið í rúman klukkutíma með einu skúrahléi inn á milli. Kaldir voru puttarnir í lokin eins og hjá Guðjóni fyrr um daginn! Vindur var mest í 10 m/s en sást kíkja upp fyrir 13 m/s og niður í 7 m/s á tímabili.