Heimsmeistaramótið í F3F – Dagur 6

Laugardagurinn rann upp bjartur og fagur en með minni vind heldur en spáð var. Það varð fljótlega ljóst að ekki stóð til að reyna við fjórtándu umferð heldur átti leggja alla áherslu á að klára þá þrettándu.

Svo leið morguninn án flugs nema þá á léttum flugmódelum og einhver módel skiptu um eigendur næstu klukkutímana.

Það var svo loks um 11:40 sem þriðji hópur þrettándu umferðar var ræstur út og gekk hann að mestu mjög hratt, alla vega miðað við síðustu tilraun. Besti tíminn var 58 sekúndur og sá lakasti 99 sekúndur en 2 fengu 0 stig. Annar þeirra af því að kastarinn hans rak vænginn í hausinn á sér í kastinu og vélin fór aldrei á flug en hin flaug inn fyrir öryggislínu og lenti utan lendingarsvæðis.

Guðjón var í fyrri hluta hópsins svo okkar menn komust upp á hótel að pakka upp úr eitt. Svo var bara staðið í akkorði að pakka þar sem rúturnar í verðlaunaafhendinguna og hátíðarkvöldverðin lögðu af stað þrjú en við leggjum af stað heim 5:30 í fyrramálið svo það er ekki mikill tími laus í kvöld og fyrramálið.

Rúturnar lögðu af stað um þrjú og héldu sem leið lá til Sassnitz en þar var stigið um borð í ferjuna sem siglir til Binz og lagt út á Eystrasaltið. Við fórum hins vegar ekki frá borði í Binz heldur héldum áfram til Sellin þar sem við lögðumst bryggju og stigum frá borði.

Á bryggjunni er glæsilegur veitinga- og samkomustaður þar sem verðlaunaathöfnin fór fram og eftir hana var sest að snæðingi en glæsilegt hlaðborð var á boðstólum. Fyrstu rútur fóru svo til baka um níu leytið og voru þær komnar til Putgarten um tíuleytið. Þá var bara að drífa sig í bólið enda langur dagur framundan hjá okkar mönnum.

Úrslit og niðurstöður mótsins en efstu sætin skipuðu:

1. sæti – Philipp Starry
2. sæti – Lukas Gaubatz
3. sæti – Thorsten Folkers

Í liðakeppninni:

1. sæti – Austurríki
2. sæti – Þýskaland
3. sæti – Frakkland

Í hópi ungmenna:

1. sæti – Antoni Kania
2. sæti – Hugo Escobar
3. sæti – Vladislav Chebanov

Okkar menn voru bara nokkuð sáttir við sína stöðu miðað við aðstæður en Erlingur endaði í 60. sæti, Guðjón í 59. sæti og Sverrir í 57. sæti. Allir bættu strákarnir sína persónulegu tíma nokkrum sinnum á meðan á mótinu stóð. Æfingar fyrir næsta HM, sem verður haldið í Frakklandi 2020 munu hefjast með hækkandi sól!

Takk fyrir okkur og sjáumst í brekkunum!

PS
Það var mikil áhugi fyrir opnu móti á Íslandi og ætlum við að reyna að svara þeim óskum, sennilega 2020.