Fyrri keppnisdagur í Páskamótinu

Keppt var í Kridtvejen brekkunni og byrjaði dagurinn í 8 m/s en færðist svo upp í 12 m/s með hviðum upp fyrir 14 m/s. Á dagskránni var að fljúga alla vega 5 umferðir og náðist það rétt eftir klukkan 14 en þá var ákveðið að bæta 3 umferðum við þannig að alls voru flognar 8 umferðir frá kl. 10:20 – 17:50.

35 keppendur voru mættir til leiks og gekk dagurinn að mestu leyti áfallalaust fyrir sig, einn keppandi braut þó nefið af sinni vél í fyrstu umferðinni.

Sverri og Erlingi gekk bara heilt yfir nokkuð vel í dag, Erlingur náði reyndar ekki að fljúga tvær síðustu umferðir dagsins vegna bilunar en viðgerðir voru kláraðar eftir heimkomu svo það eru allir klárir í slaginn á morgun.