Júlímótið í Draugahlíðum

Mynd: Böðvar Guðmundsson

Á lokametrunum saxaðist eitthvað úr hópnum sem ætlaði á mæta á júlímótið en að lokum vorum það 5 keppendur sem mættu upp í Draugahlíðar, Böðvar, Erlingur, Guðjón, Rafn og Sverrir. Aðstæður voru skrýtnar þegar þeir mættu og reyndar næstu tímana líka en það blés eiginlega á bæði V (sem er nær NV) og N brekkuna. En Veðurstofan var búin að spá því að vindurinn yrði meira norðanstæður í dag svo farið var í að að setja upp keppnisbrautina með það í huga.

Fyrsta klukkutímann eftir uppsetningu var hægviðri, alveg niður fyrir 2 m/s, og á tímabili fór vindurinn að koma í bakið á þeim (100° á brekkuna). En það var ekki annað að gera en að bíða og sjá til hvort að Veðurstofan hafi ekki haft rétt fyrir sér og viti menn upp úr hádegi fór vindurinn að blása á brekkuna +/-30° og í í kringum 4-5 m/s til að byrja með þannig að þá var hægt að ræsa mannskapinn út en fljótlega fór vindurinn upp í 10-12 m/s og svo eftir því sem leið á fór að hvessa meira og á tímabili var vindurinn kominn upp í kringum 23 m/s í lok sjöttu umferðar.

Keppnin gekk ekki alveg áfallalaust fyrir sig, Rafn hrasaði í lendingu eftir prufuflug í byrjun dags og Freestyler fór í freestyle flug og því miður skemmdist hún mikið við að hitta móðurjörðina. Sverrir missti sína vél aftur fyrir hól í lendingu og þurfti að draga hina vélina fram, kunnuglegt minni frá maímótinu, einhver vinna framundan við lagfæringar. Seinni vélin hjá Rafni fékk svo hnút á sig í aðfluginu eftir þriðju umferð og gat hann því ekki flogið seinni þrjár.

Rásröðin var sem hér segir:

  1. Rafn
  2. Böðvar
  3. Erlingur
  4. Guðjón
  5. Sverrir

Í ljósi aðstæðna, bæði vindmála og svo fjölda, eða réttara sagt skorts á mannafla þá var ákveðið að fljúga 3 umferðir í einu. Þegar líða fór á og vindhraðinn var orðinn mikill og vélarnar full lestaðar þá fóru að sjást nokkrir persónulegar mettímar. Fyrsta umferð var mjög jöfn, Sverrir flaug á 52,27 og Erlingur á 52,86. Aðeins meiru munaði í annari umferð, Erlingur flaug á 58,91 og Sverrir 63,25. Þriðja umferð var hnífjöfn en Sverrir flaug á 50,40 og Erlingur á 50,98. Í fjórðu umferð tók Erlingur sig til og setti nýtt persónulegt hraðamet á 47,52 á meðan Sverrir var á 52,85. Svo í fimmtu umferð þá gerði Erlingur enn betur og flaug á 45,04 og bætti þar með nýsett met sitt! Í sjöttu umferð var komið að Sverri að bæta sitt persónulega hraðamet og flaug hann þá á 40,61 sem einnig var besti tími mótsins á meðan Erlingur var á 51,43.

Það var svo hörð keppni hjá Böðvari og Guðjóni um 3. sætið og einungis rétt rúmlega 34 stig sem voru á milli þegar upp var staðið. Í annarri umferðinni flaug Guðjón á 59,49 en Böðvar á 59,53 eða einungis 4 hundruðustu úr sekúndu! Rafn var frekar óheppinn þar sem hann var að fljúga í 4-6 m/s í fyrstu þremur umferðunum sínum og gat svo ekki tekið þátt í seinni þremur umferðunum en þar hefðu eflaust komið talsvert betri tímar í hús!

Erlingur og Sverrir unnu 3 umferðir hvor en þar sem meiru munaði á tíma hjá þeim þegar Erlingur vann sínar umferðir þá skilað það honum tæplega 148 stigum umfram Sverri og þar með sigri í mótinu. Til hamingju Erlingur!

Það voru svo þreyttir og sælir flugmódelmenn sem komu við í Litlu Kaffistofunni til að fagna góðu móti og nýjum hraðametum! Böðvar tók svo eitthvað af myndefni í dag og hver veit nema eitthvað af því rati hér inn á næstunni.

Úrslit urðu sem hér segir, takið eftir meðalvindhraða hverrar umferðar, áhugasamir geta skoðað nánari greiningu á vef F3XVault: