Eftir hástartflug dagsins skelltu Sverrir og Elli sér í Kambana en þar voru þá SA 7-9 m/s og bullandi hangveður. Skemmst er frá því að segja að þeir tóku nokkrar góðar rispur í þessari einmuna veðurblíðu og elstu menn muna ekki eftir öðru eins stuttbuxnaveðri í Kömbunum.