Stefnt á þátttöku
Undirbúningsfundur var haldinn fyrr í kvöld og stefnir allt í að fullmannað lið verði sent út til þátttöku í haust. Æfingar hefjast af fullum krafti strax í mars ef veður og færð leyfir.
Undirbúningsfundur var haldinn fyrr í kvöld og stefnir allt í að fullmannað lið verði sent út til þátttöku í haust. Æfingar hefjast af fullum krafti strax í mars ef veður og færð leyfir.
Til skamms tíma voru Pólverjar að íhuga boð en ákveðið var að falla frá því og sameinast um eitt boð frá Þýskalandi. Mótið verður því haldið á Rügen en þar var það síðast haldið haustið 2012. Mótið verður haldið dagana 7. til 13. október 2018 í Kap Arkona á Rügen undir verndarvæng þýska flugmódelsambandsins, DAeC,… Continue reading Heimsmeistaramótið 2018
Það hvein og söng í öllu þegar við vöknuðum í morgun og Vigsø brekkan var enn á dagskrá. Við fengum okkur morgunmat og röltum svo í rólegheitum út í brekku enda ekki nema fimm mínútna rölt á áfangastað. Fyrstu menn voru ræstir út rétt rúmlega níu og svo var flogið til að verða hálf þrjú.… Continue reading Dagur níu – sjötti keppnisdagur