Íslandsmeistaramótið í F3F 2020

Veðurspáin var ekki góð fyrir viku síðan en eftir því sem nær dróg hefur hún verið að batna með hverju deginum. Böðvar, Erlingur, Guðjón, Jón V. P., Lúðvík og Sverrir voru mættir út í brekku kl. 8 en þá var vindurinn að blása að norðan í kringum 6 m/s og svo alveg upp fyrir 10 m/s í hviðunum. Eftir létta skoðunarferð inn á Bretaheiði var farið í að setja upp keppnisbrautina. Það var svo upp úr 10 sem vindurinn var komin í austnorðaustur en var talsvert rokkandi, bæði í stefnu og styrk eins og má sjá í grafinu sem fylgir hér að neðan.

Þar sem einungis 6 keppendur og engir aðstoðarmenn, þeir voru allir í grillinu á Hamranesi, voru mættir þá var ákveðið að fljúga 3 umferðir í einu og stefna á að klára 9 umferðir í heildina og kláruðum við rétt fyrir kl. 14. Skemmst er frá því að segja að það gekk mjög vel og engin óhöpp urðu, hvorki á flugmódelum né flugmönnum.

Rásröðin var sem hér segir:

  1. Guðjón
  2. Erlingur
  3. Lúðvík
  4. Böðvar
  5. Sverrir
  6. Jón

Hörð barátta var milli Erlings og Sverris um fyrsta sætið á meðan að Guðjón og Böðvar börðust um þriðja sætið og Jón og Lúlli um fimmta sætið. Fóru leikar svo að Erlingur vann fimm umferðir, Sverrir þrjár og Böðvar eina en það segir ekki alla söguna því það eru stigin sem skipta máli en 1000 stig fást fyrir að vinna hverja umferð og næstu menn fá svo stig sem eru reiknuð hlutfallslega út frá því hve langt frá tíma fyrsta manns þeir eru. Ef flognar eru færri en 15 umferðir er lökustu umferðinni hent en ef flognar eru 15 umferðir eða fleiri er tveim lökustu umferðunum hent.

Eins og sést í töflunni hér að neðan þá var tíminn hjá Sverri þegar Erlingur vinnur mikið nær honum en tíminn hjá Erlingi þegar Sverrir vinnur. Það skilaði því fleiri stigum í pottinn hjá Sverri en útslagði gerðu sjöunda og áttunda umferð en þá munaði um 6 sekúndum á þeim köppum. Þegar tölurnar voru teknar saman í lokin var Sverrir með tæpum 88 stigum meira heldur en Erlingur sem skilaði honum sigri á mótinu. Til hamingju Sverrir!

Besta tíma mótsins átti Sverrir en hann flaug á 45,09 í sjöundu umferð.

Að lokum langar svifflugsmótanefndinni að þakka þeim fjölmörgu sem lögðu hönd á plóg á árinu, keppendum og aðstoðarmönnum. Það er líka gaman að segja frá því að þetta er í fyrsta skipti í langan tíma sem tekst að halda Íslandsmeistaramót í hangi og hástarti á sama árinu og elstu menn áttu í vandræðum með að rifja upp hvenær það gerðist síðast.

Úrslit urðu sem hér segir, áhugasamir geta skoðað nánari greiningu á vef F3XVault: