Íslandsmótið í hangi F3F

Eftir að hafa skoðað veðurspána fyrir um viku síðan þá var ákveðið að reyna að stefna á að halda Íslandsmótin í hangi og hástarti um þessa helgi. Spáin var nokkuð stöðug fyrir laugardaginn með góðri norðanátt og fór svo að það rættist og hangmótið var haldið í dag í Draugahlíðum norður.

Kári var reyndar í stríðnisskapi og þegar við mættum út í brekku um 10:30 var nánast engin vindur og svo þegar fór að blása þá var hann í hávestan og á tímabili var hann kominn í austanátt. Þetta minnti óneitanlega á aðstæðurnar í júlímótinu 2020 ásamt fleiru. Það bætti svo í þegar leið á daginn og var meðalvindurinn að jafnaði í kringum 10 m/s en þegar við vorum að hætta var hann kominn upp í 19 m/s.

Fimm flugmenn voru skráðir til leiks og voru flognar sex umferðir þannig að allt í allt voru þetta 30 flug sem voru floginn og var lökustu umferðinni hjá hverjum flugmanni hent þannig að fimm umferðir töldu til stiga.

Rásröðin var sem hér segir:

  1. Erlingur
  2. Guðjón
  3. Jón
  4. Sigurður
  5. Sverrir

Hraðasta fyrsta legg átti Sverrir en hann var 2,90 sekúndur í fimmtu umferð en besta tímann átti einnig Sverrir á 39,02 sekúndum í sjöttu umferð og var það nýtt persónulegt met hjá honum. Þessa og aðra tölfræði er hægt að skoða í flipunum [Preliminary Rounds | Pilots | Posistion Chart | Rankings | Stats | Graphs] inn á F3XVault.

Aðstoðarmaðurinn Árni fær kærar þakkir fyrir aðstoðina frá keppendum og mótsstjórn.

Úrslit urðu sem hér segir, takið eftir meðalvindhraða hverrar umferðar, áhugasamir geta skoðað nánari greiningu á vef F3XVault: